English  Prenta  Efnisyfirlit  Sendu okkur línu  Leita
Vesturferðir

Vesturferðir > Ferðirnar > Gönguferð frá Aðalvík til Hesteyrar

Gönguferð frá Aðalvík til Hesteyrar

- Dagsferð í Hornstrandafriðlandinu -
Hornstrandir hafa í seinni tíð fengið á sig dulúðlegan blæ. Með myndum eins og Börnum náttúrunnar hefur skapast æ meiri áhugi á að kynnast þessu merka svæði. Í tímaþröng nútímans er því tilvalið að taka sér einn dag og fá örlítið sýnishorn af því hvernig fjöllin, húsin, gróðurinn og fjarlægðin frá gsm-sambandinu spila saman.

Aðalvík er þrungin sögu og víkin umkringd tveim herstöðvum úr seinna stríði. Önnur þeirra á Straumnesfjalli og hin á fjallinu Darra. Á Hesteyri standa enn níu hús sem notuð eru sem sumarhús. Staðsetning síldar- og hvalveiðistöðvarinnar sem byggð var 1894, þykir merkileg, um 2 km innan við þorpið. Þar stendur enn hár strompur stöðvarinnar og aðrar rústir. Ef tími gefst til er möguleiki á að ganga inn að Stekkeyri, þar sem síldar- og hvalveiðistöðin eitt sinn stóð.

Siglt er frá Ísafirði að Sæbóli í Aðalvík. Genginn er Staðardalurinn að Staðarkirkju sem þar stendur. Þaðan er gengið upp Fannadal og inn Hesteyrarbrúnir að Hesteyri. Á leiðinni sést vel um Djúp, Jökulfirði og upp á Drangajökul.

Miðlungserfið ganga, 14 km, rúmlega 300 metra hækkun í nokkuð grófu undirlagi. Nauðsynlegt að hafa með sér nesti, gönguskó og skjólfatnað. Gott er að koma með vaðskó eða lítið handklæði því vaðið er yfir Sléttuá.



Brottför: 22/6 - 17/8
Tími: 09:00
Lengd ferðar: 12 klst
Innifalið: Bátsferð, flugnanet og leiðsögn.
Auðkenni ferðar: V03
Lágmark: 4
Flokkar: dagsferðir, hornstrandir, ganga, ferðir, sumar

Verð: 13+ ára0-2 ára3-12 ára
15.300x7.650
 Verð fyrir 2010

Myndir



Á korti







Leita

 

Afgreiðslutímar

Yfir sumartímann er opið virka daga frá 08:00-18:00.
Um helgar:
Laugardaga frá 08:30 til 16:30
Sunnudaga frá 09:00 til 15:00

Hafðu samband

Vesturferðir ehf.
Aðalstræti 7
400 Ísafjörður
456 5111
vesturferdir@vesturferdir.is

 

Ferðamálastofa, Iceland Tourist BoardSAF