English  Prenta  Efnisyfirlit  Sendu okkur línu  Leita
Vesturferðir

Vesturferðir > Ferðirnar > Dagur á Hornbjargi

Hornbjarg
Hornbjarg

Dagur á Hornbjargi

- Hornbjarg - eitt stærsta fuglabjarg í heimi -
Hornvík er án efa einn afskekktasti staður landsins og af mörgum talinn sá fallegasti. Byggð lagðist þar af fyrir miðja 20. öldina en í dag er þar útivistarperla sem allt of fáir fá að njóta vegna erfiðs aðgengis. Eina leiðin til að komast í Hornvík er með bát og er þessi ferð sniðin fyrir þá sem vilja kynnast þessum merka stað.

Í Hornvík er náttúrufegurðin engu lík enda er víkin umgirt stærstu fuglabjörgum Íslands. Siglingin hefst á Ísafirði og á leiðinni gefst tækifæri til að njóta útsýnis inn Jökulfirðina, til Hornstranda og má svo sjá ægilegt Hælavíkurbjargið og Hornvíkina nálgast frá sjó. Siglt er að Horni og þaðan gengið á Hornbjarg. Þar er stórkostlegt fuglalífið skoðað sem og búskapur refa í friðlandinu. Ef veður leyfir er gengið uppá og yfir Miðfellið, þar sem á góðum degi sést alla leið suður að Geirólfsnúpi. Gangan endar aftur að Horni, þar sem báturinn er tekin til Ísafjarðar.

Með í för er fróður leiðsögumaður sem þekkir vel til sögu svæðisins og er vel að sér um dýra- og plöntulíf.

Ferðin tekur um 12 tíma og þar af er dvalið í Hornvík í 6-7 tíma. Farþegar þurfa að hafa með sér nesti fyrir daginn, góða skó, skjólgóðan fatnað og auðvitað myndavélina.

Brottför: 24/6-12/8
Tími: 09:00
Lengd ferðar: 12 klst.
Innifalið: Bátsferð og leiðsögn.
Auðkenni ferðar: V12
Flokkar: dagsferðir, hornstrandir, ganga, ferðir, sumar

Verð: 13+ ára0-2 ára3-12 ára
21.500x10.750
 Verð fyrir 2010

Myndir



Á korti







Leita

 

Afgreiðslutímar

Yfir sumartímann er opið virka daga frá 08:00-18:00.
Um helgar:
Laugardaga frá 08:30 til 16:30
Sunnudaga frá 09:00 til 15:00

Hafðu samband

Vesturferðir ehf.
Aðalstræti 7
400 Ísafjörður
456 5111
vesturferdir@vesturferdir.is

 

Ferðamálastofa, Iceland Tourist BoardSAF