Uppfært: 19.02
Gjafapokar
Bakpoki, svefnpoki, þvottapoki, fýlupoki.
Vesturferðir, í samstarfi við góðvini sína, bjóða nú upp á nýja tegund gjafabréfa, Gjafapoka. Pokarnir eru af öllum verðflokkum, stærðum og gerðum. Pokarnir innihalda ferðir víða á Vestfjörðum en flestir eru þeir miðaðir við Ísafjörð.
Þeir henta vel fyrir Vestfirðinga sem eiga von á vinum og vandamönnum í heimsókn, fyrirtæki sem vilja gleðja helstu samstarfsaðila sína á hátíðum eða tímamótum, þá sem vilja gefa foreldrum sínum eitthvað annað en enn einn kertastjakann og þannig má áfram telja.
Pokarnir spanna allan ársins hring. Þannig eru í boði pokar sem eru heppilegir allt árið, en einnig pokar sem eru bundnir við tímabil eins og sumar eða páska.
Gefum skemmtilega gjöf. Gefum Vestfirði.
Lundapoki: Fuglaparadísin Vigur
6.100 kr. | Alla daga 10/6-31/8
Vigur - Perlan í Djúpinu lætur engan ósnortinn. Enginn ætti að koma til Vestfjarða nema fara út í eyjuna sem með sínu fuglalífi, þægilega fólki og fallega útsýni, skilur eftir ljúfar minningar. Ekki spilla þjóðlegar veitingarnar að hætti hússins.
Kaffipoki: Heimsókn á Hesteyri
6.200 kr. | Miðviku-, föstu- og sunnudagar 16/6-22/8
Hornstrandir er svæði sem allir verða að sjá. Einstakt lífríki fugla, refa og gróðurs og merkileg sagan hjálpast að við að gera Heimsókn á Hesteyri að mikilli upplifun. Kaffisopinn í Læknishúsinu er kærkominn eftir stutta göngu um þetta yfirgefna þorp. Þessi ferð er einstakt tækifæri til að sjá friðlandið með lítilli fyrirhöfn og hentar öllum.
Bakpoki: Dagsganga á Hornströndum
15.300 kr.| Þriðjudagar 15/6-17/8
Siglt frá Ísafirði að morgni dags norður að Sæbóli í Aðalvík. Þar axla menn bakpokann og halda fram Staðardal um söguslóðir með alltumlykjandi fuglatíst og lækjarnið. Ógleymanleg ferð sem hentar öllu fullfrísku fólki. Komið er heim til Ísafjarðar að kvöldi eftir stutta siglingu frá Hesteyri.
Fýlupoki: Á þjóðlegu nótunum á Ísafirði
1/9-31/5 | 1/6-31/8
Ísafjörður og nágrenni hefur upp á margt að bjóða og því ekki úr vegi að verja tíma þar. Nægur tími til að skoða sig um og njóta umhverfisins í gönguferð eða bíltúr. Sterklyktandi hákarl og ekta vestfirskur harðfiskur bíða gesta á koddanum á Hótel Ísafirði og morgunverðurinn ætti að ná úr þér morgunfýlunni. Auk gistingarinnar, hákarlsins og harðfisksins er tveggja rétta kvöldmáltíð Við Pollinn innifalin í pakkanum. Því þarf enginn að vera fýlupoki á Ísafirði.
Svefnpoki: Sæluhelgi á Hótel Ísafirði
1/9-31/5 | 1/6-31/8
Stundum þarf maður bara að gera ekki neitt. Skildu svefnpokann eftir heima og gistu í vel búnu herbergi á Hótel Ísafirði. Rúmin og aðbúnaðurinn gera það að verkum að hægt er að sofa úr sér alla streitu og stress. Innifalin er gisting í uppábúnum rúmum í tvær nætur, morgunverður báða morgna og þriggja rétta kvöldmáltíð seinna kvöldið. Við þennan pakka er heppilegt að bæta Lundapokanum eða Kaffipokanum og úr verður frábær helgi.
Þvottapoki: Fimm sundlaugar á þremur dögum
1/9-31/5 | 1/6-31/8
Litlu þorpin á norðanverðum Vestfjörðum státa öll af góðum sundlaugum með sál. Í þessum skemmtilega pakka er innifalinn aðgangur að fimm sundlaugum, á Ísafirði, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri og Bolungarvík. Þrír þeir síðarnefndu eru innan 20 mínútna aksturs frá Ísafirði, en Þingeyri er í þriggja kortera fjarlægð. Með í pakkanum er svo gisting á Hótel Ísafirði (þvottapoki innifalinn) í tvær nætur og tveggja rétta kvöldverður á jarðhæðinni. Ef fólk kemur með flugi, mælum við með því að bæta bílaleigubíl við pakkann.
Strandapoki: Galdrar og Grímsey
15/6-10/8| 11/8-14/6
Strandir hafa yfir sér dulúðlegan blæ, en luma jafnframt á skemmtilegum afþreyingarmöguleikum og fagurri náttúru. Í þessum pakka er tvinnað saman gistingu á Kirkjubóli, ferð í lundaeyna sögufrægu Grímsey á Steingrímsfirði og aðgangseyri að tveimur merkum sýningum. Önnur þeirra er í Sauðfjársetrinu, sem er steinsnar frá Kirkjubóli, og hitt er hin margrómaða Galdrasýning. Sýningin er tvískipt, annarsvegar á Hólmavík og hinsvegar í Bjarnafirði og er aðgangur að báðum hlutum innifalin.
Ælupoki: Sigling og ganga í Hornvík
21.500 kr. | Fimmtudagar 24/6 - 12/8
Sigling frá Ísafirði norður fyrir Ryt, Straumnes og Kögur. Siglt er undir Hælavíkurbjarg, eitt hæsta og hrikalegasta fuglabjarg Íslands. Þaðan er siglt yfir víkina að Horni, þar sem farþegar taka land, og gengið upp á Hornbjarg. Þannig ná ferðamenn að upplifa tvö af stærstu fuglabjörgum Evrópu á fjölbreyttan og skemmtilegan máta. Siglingin tekur um 2-3 tíma hvora leið og er stoppað um 6 tíma á Hornbjargi.
Athugið að nafnið á pokanum er til gamans, fæstir selja upp á siglingunni.
Sjópoki: Heimsókn á Suðureyri
| Allt árið
Hafið sækir á Íslendinga, hvort sem þeir eru af lattesötrandi punktur.is kynslóðinni eða eldri. Hér gefst kostur á að troða í sjópokann og vera alvöru sjómaður frá alvöru sjávarþorpi. Innifalin í pakkanum er gisting í tvær nætur, 2-3 tíma róður á smábáti (kalt bleksvart kaffi innifalið), heimsókn í frystihúsið á staðnum og dýrindis kvöldverður á sjávarréttaveitingastaðnum í bænum.
Skíðapoki: Skíðavikan á Ísafirði
| Páskahelgin
Skíðavikan á Ísafirði hefur verið haldin hátíðleg í tugi ára og hefur skipað fastan sess í hugum Íslendinga. Ekki eiga allir ættingja fyrir vestan sem geta endalaust bætt við sig gestum á dýnu á stofugólfinu. Því er tilvalið að fá sér gistingu í hjarta Ísafjarðar og láta sér líða vel. Innifalin í pakkanum er gisting í þrjár nætur á Hótel Ísafirði og þriggja rétta kvöldverður Við Pollinn fimmtudags- eða föstudagskvöldið. Á laugardeginum er tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður, en á fimmtudags- og föstudagskvöldið eru tónleikar Við Pollinn að borðhaldi loknu. Miði á þá tónleika er innfalinn og því ætti kvöldið að vera góð upphitun fyrir hljómsveitasæginn sem treður upp á tónlistarhátiðinni.
Sparipoki: Lundi og lúxus á Ísafirði
26/8-9/6 | 10/6-25/8
Láttu fara vel um gesti þína eða vini með þessum sparipoka. Tvær nætur í deluxe herberginu á Hótel Ísafirði, kvöldverður Við Pollinn og nudd hjá Stebba í Stúdíó Dan gera dvölina þægilega. Umhverfið gera helgina svo ógleymanlega. Rúsínan í pylsuendanum er svo ferð í fuglaparadísina Vigur sem er innifalin í ferðum yfir sumartímann.
Innkaupapoki: Tveir pokar saman
Settu saman tvo mismunandi poka og fáðu 5% afslátt. Meiri afsláttur fylgir stærri samsetningum. Hafðu samband.
Blandípoki: Gerðu þinn eigin poka
Þú þekkir viðtakanda pokans best. Blöndum saman í poka sem hentar honum best. Það getur bæði verið tilbrigði við ofangreind stef, eða eitthvað alveg nýtt. Ekki hika við að hafa samband.
Ýmsar upplýsingar
Ísl-enska?
Viltu hafa gjafabréfið á ensku? Ekkert mál.
Frágangur
Gjafapokinn kemur til þín í flötu bréfi. Í pokanum er gjafabréfið sjálft, fallegur gjafapoki og skrjáfpappír. Skrjáfpappírinn geturðu notað til að vöðla saman og gefa pokanum fyllingu. Merkimiði fylgir með.
Senda beint?
Eigum við að senda þetta beint til viðtakanda? Ekkert mál. Hann fær pokann alveg eins og þú hefðir fengið, en skrjáfpappírnum sleppum við.
Póstburðargjöld?
Póstburðargjald innanlands er innifalið. Sendingakostnaður til útlanda leggst ofan á kostnað ef við á.
Hvernig panta ég?
Best er að senda okkur tölvupóst til vesturferdir@vesturferdir.is. Hafðu með allar venjulegar upplýsingar og farsímanúmer hjá þér. Við hringjum svo í þig og biðjum um greiðslukortsupplýsingar.
Athugið
Tveggja rétta kvöldverðir Við Pollinn samanstanda af súpu, fiskrétti og kaffi. Þriggja rétta kvöldverðir samanstanda af fiskforrétti (t.d. humri), kjötaðalrétti (lambafille), eftirrétti og kaffi.
Öll verð eru á mann. Þegar gisting fylgir með í pokanum er miðað við mann í tveggja manna herbergi. Verð er því annað ef fjöldi gesta er oddatala. Allir pokar gilda út sumarið 2010 nema sérstakar aðstæður komi upp. Þá reynum við að koma til móts við óskir handhafa. Sumarið 2010 geta vikudagar og gildistími sumarferða þó hafa raskast. Pokarnir fást ekki endurgreiddir en verðgildi þeirra er þó hægt að nota til kaupa á annarri þjónustu Vesturferða. Bóka þarf þá þjónustu sem á pokanum stendur fyrirfram skv. reglum sem eiga við um þá þjónustu sem um ræðir. Reglur um lágmarks- eða hámarksfjölda farþega geta hamlað handhöfum för í sumum tilfellum skv. reglum sem gilda um hverja ferð. Annars gilda almennir skilmálar Vesturferða og þjónustuveitenda.
Vinsamlegast hafið samband upp á verð, þar sem það vantar.