Vigur - Perlan í Djúpinu
Eyjan Vigur er einn af þeim stöðum sem ferðafólk til Vestfjarða verður að heimsækja.
Íbúar eyjunnar bjóða ykkur velkomin með afslöppuðu og rólegu fasi og þar er sem tíminn standi kyrr. Farþegabátur fer daglega inn um Djúp og siglt er nærri landi. Á gönguferð um eyjuna fá gestir tækifæri til að skoða þúsundir fugla t.d. æðarfugl, lunda og teistu. Að henni lokinni er boðið upp á veitingar í Viktoríuhúsi.
Komið aftur til Ísafjarðar 3-4 klst eftir brottför.
Brottför: 10/6 - 31/8
Tími: 14:00
Lengd ferðar: 3-4 klst
Innifalið: Bátsferð, leiðsögn og léttar veitingar í eyjunni.
Auðkenni ferðar: V02
Flokkar: dagsferðir, Ísafjörður og nágrenni, bátar, ferðir, sumar
| Verð: | 13+ ára | 0-2 ára | 3-12 ára |
|---|
| 6.100 | 0 | 3.050 |
| | Verð fyrir 2010 |
Myndir
Á korti