Frá Grímsey.
Fuglaskoðun í Grímsey á Steingrímsfirði
- Stærsta leyndarmál Stranda? -
Grímsey á Steingrímsfirði er stærsta eyja fyrir Ströndum. Þjóðsagan segir að Grímsey hafi orðið til þegar þrjú tröll ætluðu sér að grafa Vestfjarðarkjálkann frá meginlandinu.
Í Grímsey var fyrrum býli og fram á 20. öld höfðu menn vetursetu þarna og verbúðir. Í upphafi 20. aldar voru refir aldir í eyjunni og síðan veiddir þegar mest fékk fyrir skinnið af þeim. Í eyjunni var reistur viti 1915 og síðan endurbyggður 1949, eftir að Þjóðverjar höfðu eyðilagt hann með loftárás í síðari heimsstyrjöld.
Boðið verður upp á bátsferðir í Grímsey frá Drangsnesi sem er einungis 10 mínútna sigling. Gengið er um eyjuna með leiðsögn þar sem bæði sögu eyjunnar og fuglalífi er sérstakur gaumur gefinn. Ef veður er gott er siglt hringinn í kringum eyjuna að göngu lokinni og færi dýft í sjó.
Brottför er að öllu jöfnu frá bryggju á Drangsnesi, en ekki frá Kokkálsvík sem er leguhöfn um 2,5 km fyrir utan bæinn.
Grímsey er mikil fuglaparadís og ættu áhugamenn um fugla ekki að missa af þessu, en talið er að það séu um 800-900 þúsund lundapör í eyjunni.
Brottför: 15/6 - 10/8 (2010)
Tími: 14:00
Lengd ferðar: 3-4 klst
Innifalið: Bátsferð og leiðsögn um eyjuna.
Auðkenni ferðar: V20
Flokkar: dagsferðir, allir vestfirðir, bátar, hugmyndir, sumar
| Verð: | 13+ ára | 0-2 ára | 3-12 ára |
|---|
| 4.000 | 0 | 2.000 |
| | Verð fyrir 2010 |
Myndir
Á korti