Áætlanir báta til Hornstranda og aðliggjandi svæða
Vesturferðir bóka í alla báta með farþegaleyfi sem fara áætlunarferðir norður á Hornstrandir og til aðliggjandi svæða. Þrjú félög munu vera í slíkum rekstri sumarið 2010.
Sjóferðir fara frá
Ísafirði og eru með mjög þétta áætlun.
Freydís sf. fer frá Norðurfirði á Ströndum með áætlun. Bæði þessi félög eru líka umsvifamikil í aukaferðum og sérferðum.
Frá Bolungarvík siglir þriðja félagið,
Bjarnarnes ehf., norður í Aðalvík og í Jökulfirði. Áætlunarferðir eru í Aðalvík tvisvar í viku. Auk þess að bóka í áætlunarferðir aðstoða Vesturferðir ferðamenn við tilboðsgerð í sérferðir með Bjarnarnesi ehf.
Vesturferðir eru í góðu samstarfi við alla þessa aðila og leggja ekki bókunargjald ofan á það verð sem þessir aðilar bjóða.
Allar ferðir þarf að greiða við bókun og
farseðil þarf að sækja á skrifstofu Vesturferða fyrir brottför, einnig miða sem bókaðir eru á netinu.
Mæting í dagsferðir (Vigur, Heimsókn á Hesteyri og dagsgöngur undir leiðsögn) er 15-20 mín fyrir brottför á bryggju Sjóferða við smábátahöfnina á Ísafirði. Gönguferðalangar og farþegar með farangur þurfa að mæta 30 mín fyrir brottför.
Bryggja Bjarnarness, sem siglir frá Bolungarvík, er við hafnarbúð Olís á smábátabryggjunni í Bolungarvík. Mæting er a.m.k. 20 mín fyrir brottför.
Vesturferðir geta einnig aðstoðað við að útvega
gistingu,
samkomutjald og veitt
ráðgjöf hornstrandaförum og öðrum gönguhrólfum.
Verðskrá
Brottfararstaður: Ísafjörður
| Áfangastaður |
Verð aðra leið |
| Aðalvík |
5.700 |
| Grunnavík |
4.800 |
| Hesteyri |
5.200 |
| Hornvík |
9.600 |
| Hrafnfjörður |
8.600 |
| Veiðileysufjörður |
7.000 |
Brottfararstaður: Norðurfjörður
| Áfangastaður |
Verð aðra leið |
| Hornvík |
8.500, 8.000 |
| Reykjarfjörður |
6.500 |
Brottfararstaður: Bolungarvík
| Áfangastaður |
Verð aðra leið |
| Aðalvík |
5.000 |
Tímalína
- Ísafjörður - Aðalvík (19/6 - 21/8)
- Ísafjörður - Hornvík (24/6 - 16/8)
- Ísafjörður - Grunnavík (19/6 - 21/8)
- Ísafjörður - Hesteyri (18/6 - 22/8)
- Ísafjörður - Hrafnfjörður (19/6 - 21/8)
- Ísafjörður - Veiðileysufjörður (19/6 - 21/8)
- Norðurfjörður - Hornvík (20/6 - 17/8)
- Norðurfjörður - Reykjarfjörður (20/6 - 16/8)
- Bolungarvík - Aðalvík (16/6 - 20/8)
Spurt og svarað
Skilmálar í áætlunarbáta
Aukaferðir
Alltaf er gefið tilboð í aukaferðir. Þó má gefa sér að öðru jöfnu eftirfarandi reiknireglu: Verð á farþega í aukaferðum er áætlunargjald með 20% álagi. Gólf er yfirleitt í 15 fargjöldum, þ.e. það er það grunnverð sem greiða þarf að lágmarki. Gjald er tekið á hvern farþega ef þeir eru fleiri en 15. Miðað er við 20 manns í Hlöðuvík og Hornvík. Frávik geta verið frá þessu af margvíslegum ástæðum, bæði til kostnaðarauka og til afsláttar.
Hafið samband til að fá tilboð.
Ég sé bara hvenær báturinn fer frá brottfararstað. Hvenær kemur hann til baka?
Bátarnir fara að jafnaði frá brottfararstað á áfangastað, setja þar farþega í land, taka nýja og fara aftur heim. Stundum fara þeir á fleiri en einn stað í hverri ferð. Upplýsingar um þetta er að finna með því að smella á tímasetningarnar.
Er hægt að fara í útsýnissiglingu?
Já, það er svo sannarlega hægt. Í ferðir þar sem báturinn er bara að fara með og sækja fólk er hægt að fara um borð á brottfararstað og koma heim samdægurs án þess að stíga frá borði. Hjá Sjóferðum er verð reiknað með því að margfalda dýrasta áfangastaðinn á leiðinni með 1,5. Í Jökulfjarðahringnum á laugardagsmorgnum er dýrasti viðkomustaðurinn Hrafnfjörður, 8600. Þar kostar hringmiði því 8600*1,5 = 12900. Athugið að bóka þarf í þessar ferðir eins og aðrar. Ekki er hægt að fara í útsýnissiglingu með bátum sem eru í skipulögðum leiðsögðum ferðum, s.s. tvöferðinni í Vigur, tvöferðinni á Hesteyri eða Hornvík á fimmtudögum. Hjá öðrum er verð í útsýnissiglingu gefið sér.
Hvað með ferðir utan áætlanatímabilsins?
Hægt er að leigja báta til að fara á hina og þessa staði.
Hafið samband og fáið verðtilboð.
Er hægt að senda pakka á undan sér eða trússa?
Já. Það er hægt. Fyrir einfaldar pakkasendingar sem komast með áætlunarbátum er gjaldið 2000 á pakka af venjulegri stærð (kassi eða taska). Fyrir flóknari sendingar og trúss milli staða þarf að
hafa samband. Vinsamlegast gangi vel frá trúss sendingum, pakkið þeim í plastpoka eða aðrar vatnsheldnar umbúðir og merkið áfangastað, dagsetningu og nafn viðtakanda.
Hve langan tíma tekur siglingin?
Bátar Sjóferða, Guðrún Kristjáns, Bliki og Ingólfur, eru nýir tveggja véla hraðbátar sem ganga 20 mílur við kjörskilyrði. Sama gildir um bát Bjarnarness og Sædísi. Veður og sjólag hafa mikil áhrif á ganghraða. Smellið á tímasetningarnar fyrir nánari upplýsingar.
Er hægt að leigja samkomutjald?
Já. Vesturferðir hafa á sínum snærum glæsilegt samkomutjald til leigu. Sjá
hér.
Er verðið fyrir aðra leið eða báðar?
Verðið er fyrir ferð aðra leið. Sama verð er til baka.
Kort af Hornströndum

Heimahafnir
- 1. Ísafjörður
- 2. Bolungarvík
- 3. Norðurfjörður
Helstu viðkomustaðir á Hornströndum og aðliggjandi svæðum
- 4. Hesteyri
- 5. Aðalvík (Sæból og Látrar)
- 6. Hornvík
- 7. Grunnavík
- 8. Reykjarfjörður
- 9. Hrafnfjörður
- 10. Veiðileysufjörður
- 11. Bolungarvík (eystri)