Vesturferðir > Ferðirnar > Lengri ferðir
Skemmtileg 6 daga gönguferð. Hornstrandir eru einstakt landsvæði nyrst á Vestfjörðum. Að ganga á Hornströndum er engu öðru líkt og friðurinn og kyrrðin sem þar ríkir fylgir ferðamönnum löngu eftir að heim er komið. Hornstrandir voru friðaðar árið 1975 og síðan þá hefur gróður og dýralíf blómstrað, fjarri ágengni manna. Að ferðast um svæðið er sérstakt fyrir marga hluta sakir. Fyrir utan stórbrotna náttúru og merkilega sögu þá reynir oft óvenjuleg veðrátta svæðisins á göngufólk og því mikilvægt að vera öllu viðbúin. Í vandaðri bók sinni um Hornstrandir lýsir Páll Ásgeir Ásgeirsson því að það sé „votviðrasamara, þokusælla og kaldara en víða annars staðar og rétt að haga klæðnaði í samræmi við það“. Jafnframt má búast við bongóblíðu, sól og heiðskýrum himni. Það eru einmitt þessir spennandi þættir; fjarlægðin, einangrunin og náttúran sem gera ferðina að ógleymanlegri upplifun. Gist er í húsum og tjöldum.
4ra daga ævintýri í friðlandinu. Hornstrandir eru einstakt landsvæði nyrst á Vestfjörðum. Að ganga á Hornströndum er engu öðru líkt og friðurinn og kyrrðin sem þar ríkir fylgir ferðamönnum löngu eftir að heim er komið. Hornstrandir voru friðaðar árið 1975 og síðan þá hefur gróður og dýralíf blómstrað, fjarri ágengni manna. Að ferðast um svæðið er sérstakt fyrir marga hluta sakir. Fyrir utan stórbrotna náttúru og merkilega sögu þá reynir oft einstök veðrátta svæðisins á göngufólk og mikilvægt er að vera öllu viðbúin. Í vandaðri bók sinni um Hornstrandir lýsir Páll Ásgeir Ásgeirsson því að það sé „votviðrasamara, þokusælla og kaldara en víða annars staðar og rétt að haga klæðnaði í samræmi við það“. Jafnframt má búast við bongóblíðu, sól og heiðskýrum himni. Það eru einmitt þessir spennandi þættir; fjarlægðin, einangrunin og náttúran sem gera ferðina að ógleymanlegri upplifun.
Það þarf ekki að vera mikið mál að skreppa yfir í Jökulfirði. Á Hesteyri er boðið upp á svefnpokagistingu í Læknishúsinu. Þó gistingin sé ekki íburðarmikil er hún mjög notaleg og gestgjafarnir yndislegir. Eldunaraðstaða er góð. Allt í kring eru skemmtilegar gönguleiðir. Frá Hesteyri er gaman að ganga yfir í Aðalvík, fara í kirkjugarðinn eða inn að hvalveiðistöðinni á Stekkeyri. Einnig er yndislegt að slappa af í þessu einstaka umhverfi
Refurinn er eina villta landspendýrið sem var á Íslandi þegar landið var numið fyrir um 1.000 árum af norrænum mönnum. Þetta er ný ferð á vegum Vesturferða og verður hún prófuð í fyrsta skiptið nk. sumar. Um er að ræða 4 daga ferð þar sem gist verður í þrjár nætur að Hornbjargsvita í Látravík. Þessi ferð ætti að vera áhugaverður kostur fyrir refaáhugamenn eða aðra sem vilja kynnast náttúru Hornstranda á skemmtilegan hátt.
Ísafjörður er tilvalinn staður fyrir árshátíðir, starfsmannaferðir og skemmtiferðir. Flogið er 2-3 á dag allt árið, góð gisting er í boði, veitingastaðir auk fjölbreyttra möguleika á skoðunarferðum.
Færst hefur í vöxt að áður en 10. bekkir takast á hendur það verkefni að klára skyldunámið sitt, fari þeir í göngu- eða útivistarferð. Til þess arna kemur gönguferð á Vestfjörðum eða Hornströndum til greina, enda sameinast þar fögur náttúra, heppilega mikil/lítil þjónusta og ríflegir möguleikar til afþreyingar í bland. Á gönguferð er reynt á þolrif hópsins og hann hristur saman fyrir átök vetrarins með því að vaða nokkrar ár og fá blöðrur milli tánna. Í Jökulfjörðum eru bæði hús að Hesteyri og í Grunnavík. Þar er hægt að sofa inni, eða nýta sér þessi hús allavega fyrir kennarana og eldamennskuna og láta skarann, ef stór er, gista í tjöldum.
Það er orðið æ algengara að nemendur í 10. bekk fari í stutt ferðalag að hausti eða að vori að loknum samræmdum prófum. Vestfirðir hafa upp á margt að bjóða fyrir slíka hópa. Möguleikarnir eru óþrjótandi til að fræðast og skemmta sér í góðra vina hópi. Leiðsögumenn og fararstjórar eru hér fjölmargir og sérstaklega mikið af skemmtilegum kennurum og leiðsögumönnum sem segja skemmtilega frá plöntu- og dýralífi, sögu, menningu og þvíumlíku. Þá eru hér leiðsögumenn sem gott er að hafa með sér í gönguferðum.