Vesturferðir > Ferðirnar > Hugmyndir
Það þarf ekki að vera mikið mál að skreppa yfir í Jökulfirði. Á Hesteyri er boðið upp á svefnpokagistingu í Læknishúsinu. Þó gistingin sé ekki íburðarmikil er hún mjög notaleg og gestgjafarnir yndislegir. Eldunaraðstaða er góð. Allt í kring eru skemmtilegar gönguleiðir. Frá Hesteyri er gaman að ganga yfir í Aðalvík, fara í kirkjugarðinn eða inn að hvalveiðistöðinni á Stekkeyri. Einnig er yndislegt að slappa af í þessu einstaka umhverfi
Vigur hefur á síðustu árum orðið að einum helsta viðkomustað ferðafólks á Vestfjörðum. Eftir ljúfa bátsferð er tekið land í Vigur og þar er sem tíminn standi í stað. Heimilisfólk býður gesti velkomið með heillandi gestrisni á meðan náttúran og fuglalífið skarta sínu skærasta.
Ferð fyrir söguþyrsta. Riðið út með Dýrafirði og fræðst um sögu frægasta Vestfirðings fyrr og síðar, Gísla Súrsonar. Við Meðaldal er farið niður að sjó, út fyrir Haukadalsnes og inn í Haukadal þar sem er aðal sögusvið Gísla sögu.
Grímsey á Steingrímsfirði er stærsta eyja fyrir Ströndum. Þjóðsagan segir að Grímsey hafi orðið til þegar þrjú tröll ætluðu sér að grafa Vestfjarðarkjálkann frá meginlandinu.
Refurinn er eina villta landspendýrið sem var á Íslandi þegar landið var numið fyrir um 1.000 árum af norrænum mönnum. Þetta er ný ferð á vegum Vesturferða og verður hún prófuð í fyrsta skiptið nk. sumar. Um er að ræða 4 daga ferð þar sem gist verður í þrjár nætur að Hornbjargsvita í Látravík. Þessi ferð ætti að vera áhugaverður kostur fyrir refaáhugamenn eða aðra sem vilja kynnast náttúru Hornstranda á skemmtilegan hátt.
Þessi ferð er sérsniðin fyrir hópa sem gista á Ísafirði eða nágrenni, en leggja svo af stað snemma að morgni áleiðis til Hólmavíkur. Gert er ráð fyrir að farþegar sigli í Vigur og rútan aki í Ögur og taki farþega þar að lokinni skoðunarferðinni. Þannig sparar hópurinn sér tíma í rútu um firði og fjöll.
Eyjan Vigur er sjálfsagður áfangastaður allra sem leggja leið sína vestur á firði. Íbúar eyjunnar bjóða fólk velkomið með rólegu og afslöppuðu fasi og þar er sem tíminn standi í stað. Þessi ferð er aðeins ætluð fyrir hópa.
Á Vestfjörðum mætast gamli og nýji tíminn. Við hliðina á 17. aldar húsunum í Neðstakaupstað er hátækni fiskiðnaður og allstaðar má sjá togstreitu gamla tímans og hins nýja.
Dynjandi, eða Fjallfoss, er einhver fallegasti foss landsins. Jón Sigurðsson er einhver dáðasti Íslendingur fyrr og síðar. Hví ekki að sameina þetta tvennt og skella sér í Arnarfjörðinn?
Ísafjörður er tilvalinn staður fyrir árshátíðir, starfsmannaferðir og skemmtiferðir. Flogið er 2-3 á dag allt árið, góð gisting er í boði, veitingastaðir auk fjölbreyttra möguleika á skoðunarferðum.
Gengið er inn Heydal en hann er kjarri vaxinn og eftir botni hans liðast Heydalsá með smáfossum og flúðum. Í botni dalsins rennur Þverá í stöllum í Heydalsá. Þverá kemur úr Ausuvatni þangað sem ferðinni er heitið. Í dalnum eru nokkur stór gil sem setja svip sinn á umhverfið. Í Ausuvatni er mjög fallegur og pattaralegur urriði. Miðlungsferð - þáttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Færst hefur í vöxt að áður en 10. bekkir takast á hendur það verkefni að klára skyldunámið sitt, fari þeir í göngu- eða útivistarferð. Til þess arna kemur gönguferð á Vestfjörðum eða Hornströndum til greina, enda sameinast þar fögur náttúra, heppilega mikil/lítil þjónusta og ríflegir möguleikar til afþreyingar í bland. Á gönguferð er reynt á þolrif hópsins og hann hristur saman fyrir átök vetrarins með því að vaða nokkrar ár og fá blöðrur milli tánna. Í Jökulfjörðum eru bæði hús að Hesteyri og í Grunnavík. Þar er hægt að sofa inni, eða nýta sér þessi hús allavega fyrir kennarana og eldamennskuna og láta skarann, ef stór er, gista í tjöldum.
Heimsskautsrefurinn var eina spendýrið á Íslandi þegar land var numið, og lifðu hér í sátt og samlyndi við náttúruna. Á Hornströndum lifa langflestir refir á Íslandi, sem gerir ferðalöngum kleyft að sjá refinn í sínu náttúrulega umhverfi.
Það er orðið æ algengara að nemendur í 10. bekk fari í stutt ferðalag að hausti eða að vori að loknum samræmdum prófum. Vestfirðir hafa upp á margt að bjóða fyrir slíka hópa. Möguleikarnir eru óþrjótandi til að fræðast og skemmta sér í góðra vina hópi. Leiðsögumenn og fararstjórar eru hér fjölmargir og sérstaklega mikið af skemmtilegum kennurum og leiðsögumönnum sem segja skemmtilega frá plöntu- og dýralífi, sögu, menningu og þvíumlíku. Þá eru hér leiðsögumenn sem gott er að hafa með sér í gönguferðum.