English  Prenta  Efnisyfirlit  Sendu okkur línu  Leita
Vesturferðir

Haust: Haust miðast við september til nóvember


Kajakferð í Djúpinu

- Folafótur - tveggja fjarða kajakferð -

Ísafjarðardjúp er mjög vel fallið til kajakferða bæði fyrir byrjendur sem lengra komna. Einstök fegurð fjarðanna er sjálfsögð í hugum heimamanna en er aðkomumönnum óvænt upplifun. Fegurð Snæfjallastranda með snjóinn í hlíðunum og nærvera Drangajökuls, gefa sterklega til kynna að ekki er langt í norðurheimskautsbauginn. Folafótur er lítill skagi milli Seyðisfjarðar og Hestfjarðar og er svæðið ótrúlega skemmtilegt fyrir kajakróður, náttúran og dýralíf er einstakt. Á þessu svæði er mikið af sel og stundum er þar hvali að sjá.

Flokkar
Dagsferðir
Ísafjarðardjúp
Kajak
Ferðir
Sumar, Vor, Haust
Á hundavaði
Verð á mann: 12.900.-
Tímabil: 15/5-30/9
Dagar: lau
Tími: 09:00
Lengd ferðar: 8 klst

Meira »

Kajakferð á Pollinum

- Kajak í boði allt árið -

Kajakíþróttin hefur undanfarin ár rutt sér til rúms svo um munar. Marga dreymir um að prófa stutta siglingu og hér gefst tækifærið til þess. Hvernig væri því að skella sér í tveggja tíma ferð í fallegu umhverfi milli brattra fjallshlíða á Pollinum í Skutulsfirði.

Flokkar
Dagsferðir
Ísafjörður og nágrenni
Kajak
Ferðir
Sumar, Vetur, Vor, Haust
Á hundavaði
Verð á mann: 7.500
Tímabil: Allt árið
Dagar: allir dagar vikunnar
Tími: 09:00 eða samkv. samk.l.
Lengd ferðar: Um 2 1/2 tími

Meira »

Krókar og kimar Ísafjarðar

- Sagan við hvert fótmál -

Gönguferð um eyrina er tilvalin leið til að fletta hulunni af undrum Ísafjarðar og draga fram í dagsljósið forvitnilegar staðreyndir sem ferðafólk jafnt sem heimamenn hafa gaman af.

Flokkar
Dagsferðir
Ísafjörður og nágrenni
Hitt og þetta
Ferðir
Sumar, Vetur, Vor, Haust
Á hundavaði
Verð á mann: Hafið samband
Tímabil: Allt árið
Dagar: allir dagar vikunnar
Tími: Samkomulag
Lengd ferðar: 2-3 tímar

Meira »

Hádegisverður í Vigur

- Fyrir hópa. -

Vigur hefur á síðustu árum orðið að einum helsta viðkomustað ferðafólks á Vestfjörðum. Eftir ljúfa bátsferð er tekið land í Vigur og þar er sem tíminn standi í stað. Heimilisfólk býður gesti velkomið með heillandi gestrisni á meðan náttúran og fuglalífið skarta sínu skærasta.

Flokkar
Dagsferðir
Ísafjörður og nágrenni
Bátar
Hugmyndir
Sumar, Vor, Haust
Á hundavaði
Verð á mann: Hafa samband
Dagar: allir dagar vikunnar
Tími: 10:00
Lengd ferðar: 3-4 klst

Meira »

Söguferð á slóðir Gísla Súrssonar

Ferð fyrir söguþyrsta. Riðið út með Dýrafirði og fræðst um sögu frægasta Vestfirðings fyrr og síðar, Gísla Súrsonar. Við Meðaldal er farið niður að sjó, út fyrir Haukadalsnes og inn í Haukadal þar sem er aðal sögusvið Gísla sögu.

Flokkar
Dagsferðir
Allir Vestfirðir
Hestar
Hugmyndir
Sumar, Vor, Haust
Á hundavaði
Verð á mann: 13.500
Dagar: lau
Tími: 14:00
Lengd ferðar: 5 klst, þar af 3 1/2 klst á baki

Meira »

Morgunkaffi í Vigur

Þessi ferð er sérsniðin fyrir hópa sem gista á Ísafirði eða nágrenni, en leggja svo af stað snemma að morgni áleiðis til Hólmavíkur. Gert er ráð fyrir að farþegar sigli í Vigur og rútan aki í Ögur og taki farþega þar að lokinni skoðunarferðinni. Þannig sparar hópurinn sér tíma í rútu um firði og fjöll.

Flokkar
Dagsferðir
Ísafjörður og nágrenni
Bátar
Hugmyndir
Sumar, Vetur, Vor, Haust
Á hundavaði
Verð á mann: tilboð,- Aðeins fyrir hópa. Þarf að panta með fyrirvara. Lágm. 12.
Tímabil: 10/6-31/8
Dagar: allir dagar vikunnar
Tími: 08:00
Lengd ferðar: 2,5 klst

Meira »

Skoðunarferð um Ísafjörð og Bolungarvík

Á Vestfjörðum mætast gamli og nýji tíminn. Við hliðina á 17. aldar húsunum í Neðstakaupstað er hátækni fiskiðnaður og allstaðar má sjá togstreitu gamla tímans og hins nýja.

Flokkar
Dagsferðir
Ísafjörður og nágrenni
Rútur
Hugmyndir
Sumar, Vetur, Vor, Haust
Á hundavaði
Verð á mann: Leitið upplýsinga.
Tímabil: Allt árið
Dagar: allir dagar vikunnar
Lengd ferðar: 3 klst

Meira »

Arnarfjörður, Dýrafjörður og Dynjandi

Dynjandi, eða Fjallfoss, er einhver fallegasti foss landsins. Jón Sigurðsson er einhver dáðasti Íslendingur fyrr og síðar. Hví ekki að sameina þetta tvennt og skella sér í Arnarfjörðinn?

Flokkar
Dagsferðir
Allir Vestfirðir
Rútur
Hugmyndir
Sumar, Vor, Haust
Á hundavaði
Tímabil: Eftir samkomulagi
Dagar: allir dagar vikunnar
Lengd ferðar: 8 klst.

Meira »

Árshátíð á Ísafirði

Ísafjörður er tilvalinn staður fyrir árshátíðir, starfsmannaferðir og skemmtiferðir. Flogið er 2-3 á dag allt árið, góð gisting er í boði, veitingastaðir auk fjölbreyttra möguleika á skoðunarferðum.

Flokkar
Lengri ferðir
Ísafjörður og nágrenni
Hitt og þetta
Hugmyndir
Sumar, Vetur, Vor, Haust
Á hundavaði
Dagar: allir dagar vikunnar

Meira »

Hestaferðir í Heydal

Heydalur er kjarri vaxinn og eftir botni hans liðast Heydalsá með smáfossum og flúðum. Í dalnum eru nokkur stór gil sem setja svip á umhverfið. Heydalur í Mjóafirði er í um 130 km fjarlægð frá Ísafirði og 110 km frá Hólmavík.

Flokkar
Dagsferðir
Ísafjarðardjúp
Hestar
Ferðir
Sumar, Vor, Haust
Á hundavaði
Tímabil: 15/06 - 31/09
Dagar: allir dagar vikunnar

Meira »

Hringferð um Sanda 1

Stutt ferð um nánasta umhverfi Sanda. Þægileg ferð í góðu og rólegu umhverfi. Ferðin hentar vel byrjendum og fólki sem hefur aldrei farið á hestbak.

Flokkar
Dagsferðir
Ísafjörður og nágrenni
Hestar
Ferðir
Sumar, Vor, Haust
Á hundavaði
Verð á mann: 2.500
Dagar: mán, þri, mið, fim, fös
Tími: 14:00
Lengd ferðar: 45 mín - 1 klst.

Meira »

Kajakferðir á Mjóafirði

Mjóifjörður er einstaklega vel fallinn til kajaksiglinga. Veðursæld er mikil og útsýni fagurt út fjörðinn norður að Drangajökli.

Flokkar
Dagsferðir
Ísafjarðardjúp
Kajak
Ferðir
Sumar, Vor, Haust
Á hundavaði
Verð á mann: Styttri ferð 5.000 kr. Lengri ferð 11.000 kr. (2010)
Tímabil: 20/05 - 31/08
Dagar:
Tími: T.d. 08:00 eða eftir samkomulagi
Lengd ferðar: Styttri verð 2 1/2 klst, lengri ferð 5 klst.

Meira »

Göngu- og veiðiferð með leiðsögn að Ausuvatni

- Ævintýraferðir í Heydal -

Gengið er inn Heydal en hann er kjarri vaxinn og eftir botni hans liðast Heydalsá með smáfossum og flúðum. Í botni dalsins rennur Þverá í stöllum í Heydalsá. Þverá kemur úr Ausuvatni þangað sem ferðinni er heitið. Í dalnum eru nokkur stór gil sem setja svip sinn á umhverfið. Í Ausuvatni er mjög fallegur og pattaralegur urriði. Miðlungsferð - þáttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.

Flokkar
Dagsferðir
Ísafjarðardjúp
Ganga
Hugmyndir
Sumar, Vor, Haust
Á hundavaði
Verð á mann: 4.000
Tímabil: 20/5-31/9
Dagar: allir dagar vikunnar
Tími: 14:00 og 16:00 í styttri ferð. 09:00 í lengri ferð.
Lengd ferðar: Styttri ferð 1-2 klst., lengri 5 - 6 klst.

Meira »

Hópeflisferð að hausti

Færst hefur í vöxt að áður en 10. bekkir takast á hendur það verkefni að klára skyldunámið sitt, fari þeir í göngu- eða útivistarferð. Til þess arna kemur gönguferð á Vestfjörðum eða Hornströndum til greina, enda sameinast þar fögur náttúra, heppilega mikil/lítil þjónusta og ríflegir möguleikar til afþreyingar í bland. Á gönguferð er reynt á þolrif hópsins og hann hristur saman fyrir átök vetrarins með því að vaða nokkrar ár og fá blöðrur milli tánna. Í Jökulfjörðum eru bæði hús að Hesteyri og í Grunnavík. Þar er hægt að sofa inni, eða nýta sér þessi hús allavega fyrir kennarana og eldamennskuna og láta skarann, ef stór er, gista í tjöldum.

Flokkar
Lengri ferðir
Hornstrandir
Ganga
Hugmyndir
Sumar, Vor, Haust
Á hundavaði
Dagar: allir dagar vikunnar

Meira »

Hestaferð að Söndum í Dýrafirði

Að Söndum hefur alltaf verið mikil og rík menning fyrir hestamennsku. Hestaferðin að Söndum er þægileg og í góðu og rólegu umhverfi. Riðinn er hringur frá Söndum upp að því sem heitir Múli, niður að Sandá og niður í fjöru. Riðið er eftir svörtum sandi og síðan heim. Ferðin hentar byrjendum vel.

Flokkar
Dagsferðir
Allir Vestfirðir
Hestar
Ferðir
Sumar, Vor, Haust
Á hundavaði
Verð á mann: 4.900
Tímabil: 10/6-31/8
Dagar: mán, þri, mið, fim, fös
Tími: 10:00
Lengd ferðar: 2 klst, 1 ½ klst. á baki.

Meira »

10. bekkur í ferðalagi um Vestfirði

- Allt sniðið að ykkar óskum -

Það er orðið æ algengara að nemendur í 10. bekk fari í stutt ferðalag að hausti eða að vori að loknum samræmdum prófum. Vestfirðir hafa upp á margt að bjóða fyrir slíka hópa. Möguleikarnir eru óþrjótandi til að fræðast og skemmta sér í góðra vina hópi. Leiðsögumenn og fararstjórar eru hér fjölmargir og sérstaklega mikið af skemmtilegum kennurum og leiðsögumönnum sem segja skemmtilega frá plöntu- og dýralífi, sögu, menningu og þvíumlíku. Þá eru hér leiðsögumenn sem gott er að hafa með sér í gönguferðum.

Flokkar
Lengri ferðir
Allir Vestfirðir
Hitt og þetta
Hugmyndir
Sumar, Vetur, Vor, Haust
Á hundavaði
Tímabil: Að vori eða hausti, eftir samkomulagi
Dagar: allir dagar vikunnar
Lengd ferðar: 2-4 dagar

Meira »






Leita

 

Afgreiðslutímar

Yfir sumartímann er opið virka daga frá 08:00-18:00.
Um helgar:
Laugardaga frá 08:30 til 16:30
Sunnudaga frá 09:00 til 15:00

Hafðu samband

Vesturferðir ehf.
Aðalstræti 7
400 Ísafjörður
456 5111
vesturferdir@vesturferdir.is

 

Ferðamálastofa, Iceland Tourist BoardSAF