Vesturferðir > Vestfirðir > Atburðadagatal
Fossavatnsgangan er elsta og fjölmennasta skíðagöngumót á Íslandi, en keppnin var fyrst haldin árið 1935. Mótinu er ætlað að höfða til allra sem áhuga hafa á skíðagöngu, hvort sem það eru harðir keppnismenn, útivistarfólk, trimmarar eða hreinlega byrjendur í íþróttinni. Allir ættu að geta fundið vegalengd við sitt hæfi, en hægt er að velja um fjórar mismunandi leiðir, 50 km, 20 km, 10 km og 7 km. Lengsta gangan er vitaskuld aðeins ætluð...
Ísfirðingar og nærsveitamenn láta sitt ekki eftir liggja í að halda lýðveldisdaginn hátíðlegan. Hátíðarhöld með leiktækjum, fjallkonunni og öllu sem tilheyrir eru haldin á Ísafirði og nágrannabyggðalögunum. Á Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, eru einnig hátíðarhöld með hefðbundnu sniði.
- Á Ísafirði um sumarsólstöður - Lengstu dagar ársins hafa í gegnum aldirnar skipað sérstakan sess í hugum Íslendinga. Atburðir, sumir yfirnáttúrulegir, í sögum okkar tengjast Jónsmessu og sumarsólstöðum. Það er undir þessum áhrifum sem tónlistarhátíðin „Við Djúpið“ er haldin milli háu fjallanna á Ísafirði og nágrenni um sumarsólstöður. Á hátíðinni er lögð áhersla á námskeið (masterclass) í hljóðfæraleik og skyldum greinum en um...
Fyrsta helgin í júlí Dýrafjarðardagar á Þingeyri - Þriggja daga alhliða hátíðarhöld með víkingaþema á nýju víkingasvæði Dýrfirðinga. Dagskráin er fjölbreytt og taka heimamenn mikin þátt í hátíðinni, sem dæmi má nefna Súpa í garði, marhnútaveiðikeppni, harmónikkudansleikur, myndlistasýning og margt fleira. Sumarið 2009 kepptu kraftakarlar í Vestfjarðarvíkingnum á sama tíma.
Sumarið 2009 voru hið 17 ára gamla Óshlíðarhlaup og fjögurra ára Vestugötuhlaup sameinuð í eina allsherjar hlaupahátíð á Vestfjörðum. Hátíðin er haldin þriðju helgina í júlí og sumarið 2010 verður hún helgina 16. til 18. júlí. Byrjað er á Óshlíðarhalupinu á föstudagskvöldi og á laugardeginum verður skemmtiskokk fyrir börn og byrjendur í greininni. Að öllum líkindum verður boðið upp á nýjung í ár þar sem hinn 50 km Svalvogshringur verður hjólaður....
- Fyrsta laugardag í júlí - Markaðsdagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur í Bolungarvík undanfarin ár. Þar má gera góð kaup á t.d. heimagerðri sultu, pönnukökum, lopahosum eða öðrum eðalvarningi. Hljómsveit heldur uppi fjörinu og skemmtikraftar fá gesti til að kíma. Bolungarvík er rómuð fyrir veðursæld svo búast má við góðu fjöri.
- Aðra helgina í júlí - Sæluhelgin á Suðureyri er fjölskylduhátíð sem undanfarin ár hefur verið gríðarvinsæl. Yngri þorpsbúar bíða spenntir allt árið eftir mannsakeppninni vinsælu, ball, varðeldur og stemming mikil svo enginn ætti að láta sér leiðast.
Fyrstu helgina í ágúst Svokölluð Kjötsúpuferð á Hesteyri er orðin fastur liður um verslunarmannahelgi og komast yfirleitt færri með en vilja. Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar ferja Hesteyrarunnendur frá Ísafirði og þegar þangað er komið rekur áðurnefnd Kiddý sögu Hesteyrar meðan farið er í gönguferð um svæðið. Að því loknu er boðið upp á kjötsúpu og pönnukökur í Læknishúsinu. Vagnsbörnin úr Bolungarvík sjá um að skemmta matargestum með ýms...
Hin árlega Skíðavika á Ísafirði verður haldin um páskana, líkt og löng hefð er fyrir, og eru Ísfirðingar og nágrannar byrjaðir að undirbúa dagskrána sem sjaldan hefur verið viðameiri. Skíðavikan hefur verið snar þáttur í menningarlífi Ísfirðinga um langt árabil, allt frá þeim tíma er gestir sigldu til Ísafjarðar með farþegaskipinu Súðinni og seinna Gullfossi til að taka þátt í veglegum hátíðahöldunum. Fjöldi gesta leggur árlega leið sí...
Rokkhátíð alþýðunnar - Aldrei fór ég suður var haldin í fyrsta skipti árið 2004 og hefur síðan þá verið árlegur viðburður í páskavikunni á Ísafirði. Hátíðin er haldin á páskahelginni. Á heimasíðu hátíðarinnar Aldrei fór ég suður lýsir Mugison upphafi hennar á eftirfarandi hátt. Við feðgar vorum að drekka bjór í útlöndum sumarið 2003 og fórum þá að ímynda okkur stórhátíð á Ísafirði þar sem venjulegt fólk væri stjörnurnar og pop-stjörnurnar ...