Nánar
- Umgengnisreglur á Hornströndum
- Gistimöguleikar á Hornströndum og aðliggjandi svæðum
- Það helsta í Hornstrandaferðina
- GPS punktar á Hornströndum
- Útbúnaðarlisti Hornstrandafara
- Auglýsing um friðland á Hornströndum
- Símasamband á Hornströndum
Uppfært: 20.04
Hornstrandir
Vesturferðir bjóða upp á fjölbreytta þjónustu við Hornstrandafara.
Dagsferðir
Við bjóðum upp á fjórar dagsferðir á Hornstrandir. Þrjár þeirra eru gönguferðir enn ein er heimsókn í þorpið við Hesteyrarfjörð. Í þeirri ferð er farið í land og rölt um eyrina undir leiðsögn, að lokum er komið við í Læknishúsinu þar sem léttar kaffiveitingar eru bornar á borð. Nánari upplýsingar um
kaffiferð á Hesteyri hér.
Á þriðjudögum förum við í göngu milli Aðalvíkur og Hesteyrar. Þá er siglt að morgni dags frá Ísafirði að Sæbóli í Aðalvík og gengið um Staðardal og Sléttuheiði yfir á Hesteyri, þaðan sem komið er heim til Ísafjarðar aftur að kvöldi.
Nánar um dagsgöngu á Hornströndum.
Á fimmtudögum er siglt alla leið norður í Hornvík. Þar er siglt undir Hælavíkurbjarg og gengið á Hornbjarg, en þau eru tvö af fuglabjargatríóinu vestfirska. Þaðan er komið heim að kvöldi.
Dagsferð á Hornbjarg.
Laugardagsgangan á Hornstrandir hefst við eyðiþorpið í Hesteyrarfirði. Þaðan er gengið upp Hesteyrardalinn, niður í Miðvík og endað að Látrum í Aðalvík þar sem báturinn sækir ferðalanga og flytur þá aftur til Ísafjarðar.
Laugardagsganga á Hornströndum.
Lengri gönguferðir
Þeim sem vilja kynnast svæðinu betur bjóðum við lengri gönguferðir undir leiðsögn, þar sem gengið er með "allt á bakinu" og gist í tjöldum eða húsum, þar sem það er mögulegt. Hér á vefnum er að finna nokkrar hugmyndir að lengri gönguferðum á Hornströndum.
6 daga ferð um Hornstrandir.
4ra daga ferð um Hornstrandir.
Áætlunarbátar fara daglega á Hornstrandarsvæðið frá Ísafirði og einnig er áætlun frá Bolungarvík. Það þýðir að auðvelt er að sníða sér stakk eftir vexti hvað varðar lengd ferðar. Helgarferð eða lengri ferð, þar sem farnar eru dagsgöngur út frá tjaldstæðinu eða svefnpokagistingu í Læknishúsinu á Hesteyri geta því verið skemmtilegur kostur.
Hesteyri - Bátur og ból.
Grunnavík er ekki síður heillandi staður. Þangað er hægt að fara eftir óskum og gista í svefnpoka í Sútarabúðum.
Annað
Við á Vesturferðum erum vön að búa til fjölbreyttar gönguferðir og pakka, sniðna að óskum ferðamanna. Þar getum við blandað saman hinu og þessu og gert frábæran kokteil.
Áætlanir báta má sjá hér á vefnum fyrir þrjú fyrirtæki, en fyrir utan þau eru hér bátar sem siglt geta með smærri hópa og trússað fyrir lítið. Endilega verið í sambandi og við gefum hópnum ykkar tilboð í bátaferðir norður á Hornstrandir. Okkur er annt um gestina okkar og því eru allir bátar sem við bjóðum með tilskilinn farþegaleyfi.
Leiðsögumenn: höfum við nokkra á okkar snærum, bæði þessa sögusérvitringa og ungu skátaforingjana, og allt þar á milli. Þeir eiga það þó allir sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á útivist og vera þaulvanir göngum á Hornströndum.
Samkomutjaldið tekur uppundir 20 í sæti innandyra, það er rammgert og bekkir og borð fylgja með. Tilvalið fyrir hópinn sem samastaður í Hornvík eða Aðalvík.
Gönguhópaþjónustafyrir einstaklinga, pör eða hópa. Vantar þig aðstoð, ráðgjöf og að bóka ferðina.
Gönguhópaþjónustan er til þjónustu reiðubúin.
Hornstrandir, friðland
Á tímabilinu 15. apríl til 15. júní þarf að tilkynna Umhverfisstofnun um öll ferðalög á Hornstrandasvæðinu. Nauðsynlegt er að hafa eftirfarandi fyrirmæli Umhverfisstofnunar í huga þegar farið er á Hornstrandir, en þau voru sett í þeim tilgangi að vernda land og minjar og stuðla að góðri sambúð ferðafólks og landsins:
Ágæti gestur: Þú ert gestur í friðlandinu. Hafðu það í huga að ef þetta svæði á að halda hreinleika sí...
Meira »

Frá Hornbjargsvita.
(mynd:Óvissuferðir)
Að neðan er listi yfir þá gistimöguleika sem eru í boði á Hornströndum og aðliggjandi svæðum. Vesturferðir bóka og veita allar nánari upplýsingar.
Hesteyri
Hýsir 16 manns í svefnpokaplássi
Eldunaraðstaða
Grunnavík
Hýsir 15 manns í svefnpokaplássi. Hefur möguleika á tjöldum fyrir fleira fólk
Eldunaraðstaða
Reykjarfjörður
Hýsir 30 manns í svefnpokaplássi
Sundlaug
Eldunaraðstaða og veitingasala
Bolungarvík á Ströndum
Hý...
Meira »
Hafa ber í huga að í þessum efnum eru alveg ógnarlegar sérviskur í gangi, og sýnist sitt hverjum. Hér að neðan er stiklað á stóru í umfjöllun um búnað sem hentar til Hornstrandaferða.
En það er eins og með margt annað; sá sem kann á það sem hann hefur, getur náð helmingi betri árangri með helmingi veigaminni græjum, umfram þann sem veit ekki eða misskilur hvernig hlutirnir eiga að virka.
Áttavitar
Var...
Meira »
Engin ábyrgð er tekin á þeim punktum sem hér er bent á. Alltaf er nauðsynlegt að hafa gott kort og áttavita og vita hvernig nota á slíkt...
Meira »
Hornstrandafriðlandið er vinsælt svæði til gönguferða. Svæðið getur verið erfitt yfirferðar, dagar geta liðið án þess að ferðamenn hitti aðra og veðrið getur breyst eins og hendi sé veifað; getur verið mjög gott en líka reglulega vont. Það er því nauðsynlegt að vera vel útbúinn í ferðalagi um Hornstrandir. Vesturferðir birta hér útbúnaðarlist...
Meira »
Stj. Tíð B, nr. 332/1985.
Samkvæmt heimild í 24. gr. laga nr. 47/1971, um náttúruvernd hefur [Umhverfisstofnun] fyrir sitt leyti ákveðið að friðlýsa svæðið norðvestan Skorarheiðar í Norður- Ísafjarðarsýslu, og er svæðið friðland.
Mörk svæðisins eru þessi:
Úr botni Hrafnsfjarðar um Skorarheiði í botn Furufjarðar. Mörkin fylgja Skorará frá ósi og í Skorarvatn. Þaðan liggja þau meðfram suðurströnd vatnsins, en síðan í beina línu úr ...
Meira »
GSM
GSM samband er lítið sem ekkert á Hornströndum.
Þó næst sími á Sléttuheiði milli Hesteyrar og Aðalvíkur, sem og á Snæfjallaströnd mestallri.
NMT
NMT samband er slitrótt og óstöðugt á svæðinu. Fjallaskörð og hólar eru þó oft góðir staðir til að ná sambandi. Tenging fer eftir snjóalögum, er betri þegar snjór er mikill. Síminn leigir NMT síma. Gott loftnet getur bætt samband mjög mikið.
Meira »
Myndir
-
Séð yfir í Hvannadal
Hvannadalur í Hornvík
-
Setið á pallinum í Rekavík
Horn, Miðfell, Jörundur og Kálfatindar í Hornvík
-
Hópurinn kominn í Hesteyrarfjörð
Síðasti spölurinn sem gengin er að Hesteyri, heitir því skemmtilega nafni Hesteyrareyrar
-
Jörundur og Kálfatindar
Hrikaleg fjöllin í Hornvík. Jörundur, Kálfatindar og Miðdalsvatn.
-
Gönguhópur á leið undir leiðsögn
Frískandi að komast úr heitum skónum