English  Prenta  Efnisyfirlit  Sendu okkur línu  Leita
Vesturferðir

Vesturferðir > Vestfirðir > Leiðarlýsingar Gísla Hjartar

Uppfært: 24.10 2007

Leiðarlýsingar Gísla Hjartar

Leiðarlýsingar Gí­sla Hjartar birtast hér með góðfúslegu leyfi höfundar. Þetta efni er uppistaðan í­ vönduðu ársriti Ferðafélagsins Útvistar sem út kom vorið 2001. Gí­sli fékk heiðursskjal og peningaverðlaun frá Ísafjarðarbæ fyrir sitt framlag í­ bókina og var þetta hvoru tveggja afhent við hátí­ðlega athöfn í­ Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði í­ maí­ 2001. Reyndar höfðu þessar greinar áður birtst í­ ársritum Útivistar á ní­unda áratug sí­ðustu aldar, en komu þá endurbættar og uppdateraðar allar saman í­ einni bók.

Ferðamönnum er heimilt að prenta út þessar leiðarlýsingar og hafa með sér á ferðalagi um svæðið.

Leiðarlýsingarnar eru:
Drangajökull og leiðir um hann
Leiðarlýsing frá Hornví­k í­ Ingólfsfjörð
Frá Hornví­k um Jökulfjörður og Snæfjallaströnd í­ Kaldalón
Gönguleiðir í­ Sléttuhreppi. Leiðarlýsingin frá Hesteyri til Hornví­kur

Gí­sli Hjartarson (mynd: Ómar Smári Kristinsson)
Gí­sli Hjartarson (mynd:
Ómar Smári Kristinsson)

Drangajökull og leiðir um hann

Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í­ himninum, þar búa ekki framar neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðsynleg, þar rí­kir fegurðin ein, ofar hverri kröfu. Á þessum orðum hefst bókin Fegurð himins í­ Heimsljósi Halldórs Kiljans Laxness. Það er Ólafur Kárason Ljósví­kí­ngur sem liggur flatur í­ hlaðvarpa Litluberví­kur, eyðikots í­ afskekktri ví­k og virðir fyrir sér þennan merkilega...

Meira »

  Gí­sli Hjartarson (mynd: Ómar Smári Kristinsson)
Gí­sli Hjartarson
(mynd: Ómar Smári
Kristinsson)

Leiðarlýsing frá Hornví­k í­ Ingólfsfjörð

Hornstrandir eru nyrsti hluti Vestfjarðakjálkans. Samkvæmt fornri málvenju eru þær taldar ná yfir ströndina frá Geirólfsgnúpi vestur að Kögri. Friðlandið á Hornströndum sem stofnað var með reglugerð árið 1975 tekur einnig yfir Aðalví­k, Fljótaví­k og norðurhluta Jökulfjarða, suður að Skorarheiði og hefur nafnið Hornstrandir stundum verið notað yfir allt það svæði, eða stóran hluta þess. Strandlengjan vestan Hornbjargs að Kögri nefnist venjulega...

Meira »

Gí­sli Hjartarson (mynd: Ómar Smári Kristinsson)
Gí­sli Hjartarson (mynd:
Ómar Smári Kristinsson)

Frá Hornví­k um Jökulfjörður og Snæfjallaströnd í­ Kaldalón

Í þessari leiðarlýsingu er ætlun mí­n að lýsa leiðinni frá Hornví­k til Lónafjarðar í­ Jökulfjörðum og sí­ðan um Hrafnfjörð, Leirufjörð, Sveitina, Staðarheiði og Grunnaví­k. Þaðan verður svo haldið úr Jökulfjörðum um Snæfjallaheiði til Snæfjallastrandar í­ Ísafjarðardjúpi og inn Ströndina að Kaldalóni. Einnig verður lýst ýmsum hliðarleiðum á þessar...

Meira »

Gí­sli Hjartarson (mynd: Ómar Smári Kristinsson)
Gí­sli Hjartarson (mynd:
Ómar Smári Kristinsson)

Gönguleiðir í­ Sléttuhreppi. Leiðarlýsingin frá Hesteyri til Hornví­kur

Sléttuhreppur heitir ysti útkjálki Íslands að norðvestan. Takmörk hans norðan og vestan eru úthafið, að sunnan og suðaustan Ísafjarðardjúp og Jökulfirðir. Aðeins einn hinna fimm Jökulfjarða er í­ Sléttuhreppi sem var, Hesteyrarfjörður, hinir tilheyrðu allir Grunnaví­kurhreppi. Hreppamörk í­ Jökulfjörðum voru við Lás, nesið sem er milli Hesteyrarfjarðar og Veiðileysufjarðar og að norðan á Sigmundarhjalla á Hornbjargi, rétt austan Almenningaskarðs....

Meira »







Leita

 

Afgreiðslutímar

Yfir sumartímann er opið virka daga frá 08:00-18:00.
Um helgar:
Laugardaga frá 08:30 til 16:30
Sunnudaga frá 09:00 til 15:00

Hafðu samband

Vesturferðir ehf.
Aðalstræti 7
400 Ísafjörður
456 5111
vesturferdir@vesturferdir.is

 

Ferðamálastofa, Iceland Tourist BoardSAF