English  Prenta  Efnisyfirlit  Sendu okkur línu  Leita
Vesturferðir

Vesturferðir > Vestfirðir > Kort af Vestfjörðum

Uppfært: 24.03

Kort af Vestfjörðum

Ný útivistarkort
Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa staðið fyrir því að gefa út göngukort fyrir allan Vestfjarðakjálkann. Göngukortin eru mjög vönduð og eru kærkomin fyrir þá ferðalanga sem hafa gaman að útivist. Göngukortin eru skýr og auðveld í notkun. Á þeim er að finna um 300 gönguleiðir með gps- punktum. Kortin nýtast bæði göngufólki, reiðfólki og hjólafólki, svo fáein not séu nefnd. Hægt er að kaupa kortið á öllum betri ferðamannastöðum á Vestfjörðum, og í Strandabúðinni á netinu.
Kortin eru til sölu í Upplýsingamiðstöðinni á Ísafirði, sem staðsett er í sama húsnæði og Vesturferðir.

Gömlu göngukortin
Vesturferðir bjóða ferðamönnum nú upp á að sækja göngukort af Ísafirði og nágrenni og vestfirsku ölpunum. Lýsingar til útprentunar og kort til útprentunar eru öllum aðgengileg, en hægt er að kaupa bæði kortin og fleiri til í­ handhægu broti á upplýsingamiðstöðvum og betri gististöðum.

Göngukort af Ísafirði og nágrenni.
Göngukort af vestfirsku ölpunum.
Gamlar samgönguleiðir frá Suðureyri.

Landakort
Landmælingar Íslands hafa gefið út góð kort fyrir ferðalanga um Vestfirði og Hornstrandir. Þau eru til sölu í bókabúðum og víða.

Norðurland - Vestfirðir Aðalkort
Kortið er hluti af nýrri útgáfu Landmælinga Íslands þar sem landinu er skipt í­ 3 hluta. Það er í­ sama mælikvarða og gömlu aðalkortin voru (1:250.000), þegar landinu var skipt í­ 9 hluta. Kortin í­ þessum flokki eru unnin með stafrænni tækni sem gefur möguleika á sí­felldri endurnýjun. Kortið er með nýjustu upplýsingum um vegi landsins, vegalengdir og veganúmer, auk mikilvægra upplýsinga um ferðaþjónustu, svo sem um bensí­nafgreiðslur, gististaði, sundlaugar, söfn, friðlýstar minjar, golfvelli, áningarstaði, hringsjár og bátsferðir.

Hornstrandir Sérkort
Landmælingar hafa gefið út mjög gott göngukort yfir Hornstandir og Jökulfirði.
Á því­ er að finna áreiðanlegar hæðarupplýsingar, klettatákn og upplýsingar um gróður, sem fengnar eru frá gervitunglamyndum. Á nýrri útgáfu kortsins voru gönguleiðirnar yfirfarnar í­ samstarfi við Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða. Á bakhlið kortsins er prentuð skrá yfir þau fjölmörgu örnefni sem á kortinu eru og var sú vinna unnin í­ samráði við Örnefnastofnun. Kortið er í­ mælikvarðanum 1:100.000.
Kortið er besta og í­ raun eina opinbera kortið yfir gönguleiðir í­ friðlandinu.

Litla vefútgáfu af korti má finna á vef Umhverfisstofnunnar hér.

Mjög góða vefútgáfu af korti má sjá á heimasí­ðu Óvissuferða hér.
Gönguleiðir í­ nágrenni Ísafjarðar
Gönguleiðir í­ nágrenni
Ísafjarðar

Gönguleiðir í­ nágrenni Ísafjarðar

Hér er hægt að skoða göngukort sem Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa gefið út. Lýsingarnar eru hér að neðan, en kortið er hægt að prenta út með því­ að sækja þessa skrá. Göngukortið er hægt að fá gegn vægu gjaldi í­ handhægu broti á upplýsingamiðstöðvum og helstu gististöðum á svæðinu. Vegalengdir og göngutí­mi, eru til viðmiðunar. Ekki er hægt að ábyrgjast ástand gönguleiða og fólk gengur á eigin ábyrgð. Góða ferð! Fram Hní­fs...

Meira »

Nýja götukortið
Nýja götukortið

Götukort fyrir norðanverða Vestfirði

Ísafjarðarbær hefur nú gefið út nýtt og endurbætt götukort fyrir norðanverða Vestfirði, það er að segja fyrir alla byggðarkjarna Ísafjarðarbæjar (Flateyri, Suðureyri, Þingeyri og loks Ísafjörð) auk Bolungarví­kur og Súðaví­kur. Í kortinu er lí­ka að finna auglýsingar um ferðaþjónustu á svæðinu ásamt upplýingum um vegalengdir tjaldsvæði og fleira. Götukort má nálgast hér á pdf sniði.

Meira »

Myndir







Leita

 

Afgreiðslutímar

Yfir sumartímann er opið virka daga frá 08:00-18:00.
Um helgar:
Laugardaga frá 08:30 til 16:30
Sunnudaga frá 09:00 til 15:00

Hafðu samband

Vesturferðir ehf.
Aðalstræti 7
400 Ísafjörður
456 5111
vesturferdir@vesturferdir.is

 

Ferðamálastofa, Iceland Tourist BoardSAF