Þegar velja þarf stað fyrir fund eða ráðstefnu er að mörgu að hyggja. Gistiaðstaða, fundasalir og samgöngur eru allt þættir sem vega þungt í staðarvalinu. Aðdráttarafl staðarins og vonin um að fundagestir fari ánægðir heim eru einnig mikilvægir þættir. Þeir sem halda fundi á Ísafirði eru sammála um að það sé öðruvísi upplifun að koma til Vestfjarða. Ísafjörður er því kjörinn staður til þess og njóta stórbrotinnar náttúru og kynnast vinaleg...
Stundum er sagt að Ísland sé paradís fuglaskoðara, en í mörgum tilvikum er mjög auðvelt að komast að fuglinum. Má þar nefna eyjuna Vigur, Hornstrandirnar og Látrabjarg. Vesturferðir bjóða upp á fuglaskoðunarferðir um Vestfirði; til Perlunnar í Djúpinu - Vigur, í Grímsey á Steingrímsfirði og í Skáleyjar á Breiðafirði. Fuglaeyjan Vigur - Perlan í Djúpinu Dagur á Hornbjargi Skáleyjar í Breiðafirði Grímsey á Steingrímsfirði
Æ algengara verður að nemendur í 10. bekk fari í stutt ferðalag að hausti eða að vori að loknum samræmdum prófum. Vestfirðir hafa upp á margt að bjóða fyrir slíka hópa. Möguleikarnir eru óþrjótandi til að fræðast og skemmta sér í góðra vina hópi. Hægt er að keyra um Vestfirðina og stoppa nokkrar nætur á Ísafirði. Með fylgir tillaga að slíkri ferð. Þar er til dæmis sjóglæfradagur, þar sem klifrað er í Arnarneshamri, stokkið ofan af kle...
Vesturferðir hafa til leigu sterkbyggt tjald til útleigu. Tjaldið er bjart en stöðugt tjald og er jafnan staðsett í Hornvík. Með tjaldinu fylgja tvö langborð og fjórir bekkir sem allt að 20 manneskjur geta setið við. Sólarhringsleiga kostar 15.000 krónur(2010). Hafið samband við skrifstofu Vesturferða fyrir nánari upplýsingar.
Mörg félög eldri borgara kjósa að bjóða upp á sumarferðir vítt og breitt um landið. Margir afþreyingarmöguleikar standa ferðalöngum til boða á Vestfjörðum. Af sérstökum ferðum er bátsferðin út í...
Vesturferðir geta séð um skipulagningu gönguferðar gönguhópsins þíns frá A-Ö. Margir gönguhópar hafa ákveðið að Hornstrandir séu næstar á dagskránni, enda er það svæði utan alfaraleiðar. Gott er að sk...