English  Prenta  Efnisyfirlit  Sendu okkur línu  Leita
Vesturferðir

Vesturferðir > Sérsniðið > Gönguhópaþjónustan

Fólk á göngu.
Fólk á göngu.
Uppfært: 04.02

Gönguhópaþjónustan

Vesturferðir geta séð um skipulagningu gönguferðar gönguhópsins þíns frá A-Ö. Margir gönguhópar hafa ákveðið að Hornstrandir séu næstar á dagskránni, enda er það svæði utan alfaraleiðar. Gott er að skipta ferðum á Hornstrandir upp í þrennt eða fernt, og taka einn hluta í hverri ferð. Hefðbundin skipting er að taka þá Aðalvík til Hornvíkur fyrsta árið, Hornvík til Reykjarfjarðar annað árið, frá Reykjarfirði suður í Norðurfjörð þriðja árið og Snæfjallaströnd og Drangajökul fjórða árið.

Skipulagning slíkra ferða er flókin, þar sem huga þarf að því hverjir fara með, hvernig eigi að flytja fólk og farangur, hvar skuli gista, hvernig ferðinni skuli háttað, hvar skuli gista eftir og fyrir ferðina og hvernig hægt sé nú að gera þetta án þess að eyða of miklum peningum. Starfsfólk Vesturferða er vant því að skipuleggja svona ferðir, og því er skynsamlegt að kaupa slíka þjónustu, og einbeita sér að öðrum og skemmtilegri þáttum ferðarinnar.

Aðstoð við skipulagningu
Hversu lengi er maður að ganga frá Hornvík til Fljótavíkur? Í hvaða átt er skemmtilegra að ganga? Hvaða tími árs hentar best? Við aðstoðum við að setja upp ferðaáætlunina.

Flutningur á fólki
Vesturferðir selja í áætlunarbáta á Hornstrandir og aðliggjandi svæði. Við gefum tilboð í stærri og flóknari ferðir.

Gisting á Hornströndum
Við útvegum gistingu á Hornströndum. Gisting er í boði, m.a. á Hesteyri, Hlöðuvík, Látravík,Bolungarvík á Ströndum, Grunnavík og víðar. Hægt er að útvega sumarhús til leigu víðar. Þá höfum við stór tjöld til leigu, annað þeirra er oftast staðsett í Hornvík en hitt er að hægt að taka hvert á land sem er. Tjöldin þola „hornstrenska“ veðráttu og a.m.k. öðru þeirra fylgja bekkir og borð.

Leiðsögn
Upplifunin af göngu um Hornstrandir er miklu sterkari í félagi með reyndum leiðsögumanni. Sagan, plönturnar, fuglarnir og gönguleiðirnar eru þættir sem leiðsögumennirnir okkar þekkja, sem og skyndihjálp og fleira. Leiðsögumaður kostar jafnan 37.000 kr. á dag og þarf að halda honum uppi að auki.

Trússferðir á Hornstrandir
Margir hópar vilja fá trússþjónustu. Við getum útvegað báta af ýmsum stærðum og gerðum til að flytja farangur. Gera þarf tilboð í hvert og eitt skipti. Gott er að hafa í huga þegar gönguferð er skipulögð, að bátarnir eru að jafnaði staðsettir á Ísafirði eða Bolungarvík, og því þarf alltaf að gera ráð fyrir siglingu á tómum báti að staðnum þar sem farangur er sóttur og frá þeim stað þar sem farangur er skilinn eftir.

Gisting fyrir og eftir
Líklega þarf að gista í byggð annaðhvort fyrir eða eftir gönguna.

Lokaveisla
Eftir að komið er til byggða, eftir velheppnaða göngu er tilvalið að fara loksins úr gore-texinu og flísinu, í sturtu og í sitt fínna púss og njóta góðs matar sem er ekki frostþurrkaður eða úr dós. Hvernig væri til dæmis að fara í sal þar sem hægt er að skoða myndirnar úr ferðinni á skjávarpa?





Leita

 

Afgreiðslutímar

Yfir sumartímann er opið virka daga frá 08:00-18:00.
Um helgar:
Laugardaga frá 08:30 til 16:30
Sunnudaga frá 09:00 til 15:00

Hafðu samband

Vesturferðir ehf.
Aðalstræti 7
400 Ísafjörður
456 5111
vesturferdir@vesturferdir.is

 

Ferðamálastofa, Iceland Tourist BoardSAF