Uppfært: 31.10 2009
Ferðir fyrir hópa eldri borgara
Mörg félög eldri borgara kjósa að bjóða upp á sumarferðir vítt og breitt um landið.
Margir afþreyingarmöguleikar standa ferðalöngum til boða á Vestfjörðum. Af sérstökum ferðum er bátsferðin út í eyna Vigur vinsælust. Farið er daglega inn í eyju, gengið um eyjuna og svo haldið í Viktoríuhúsið þar sem rjúkandi kaffi er borið fram með hjónabandssælur og tilheyrandi.
Þrisvar í viku er farið í heimsókn á Hesteyri í Jökulfjörðum þar sem farþegar fá kaffiveitingar hjá Binnu í Læknishúsinu. Hesteyrin heillar sérstaklega þroskað fólk, þar sem staðurinn ber með sér svo áhugaverða sögu liðinna tíma þar sem fólk bjó við slík harðindi og kröpp kjör að svæðið var yfirgefið um miðja síðustu öld.
En ferð á Vestfirði er ekki bara eintómur veltingur í hraðbátum, heldur miklu meira. Með þessu bréfi fylgir tillaga að ferð á Vestfirði í sumar. Þetta er bara uppkast, enda er lokaferðaáætlunin unnin, ef til kemur í nánu samstarfi okkar og ykkar. Við erum með rútur og leiðsögumenn á okkar snærum. Svo eru alltaf einhverjir sem vilja frekar bara koma með flugi og þá björgum við því líka.
Fjölmörg félög eldri borgara og orlofsnefndir húsmæðra hafa heimsótt Vestfirði síðustu ár og eru sammála um að engin eftirsjá er í því að koma vestur.
Það að vera í ferðanefnd eða stjórn félags á borð við félag eldri borgara þarf ekki endilega að vera leiðinleg kvöð og kvabb í rútubílstjórum. Við tökum það glöð að okkur alla þá vinnu. Endilega hafið samband við skrifstofu Vesturferða í síma 456-5111 og leitið nánari upplýsinga.
Tillaga að ferð um Vestfirði
Dagur 1:
Keyrt í rútu frá heimastað. Fyrir þá sem koma utan af landi (eins og við köllum þá sem ekki eru frá Vestfjörðum) er skemmtilegt að keyra Hrútafjörðinn og Djúp til Ísafjarðar og fara vesturleiðina til baka. Á leiðinni norður Strandir er þá komið við í Sauðfjársetrinu og Galdrasýningunni (ekki fyrir viðkvæmar sálir). Ísafjarðardjúpið er nú komið með mjög góða vegi svo ekki þarf að búa sig undir sérlega mikinn hossing, þó malarvegur sé hér og þar.
Dagur 2:
Eftir morgunmat er haldið í sögugöngu um króka og kima Ísafjarðar. Ísafjörður og Ísfirðingar eru kyrfilega samþættir sögu þjóðarinnar, og af mörgu að taka. Litið er við í kirkjunni, bakaríinu (Ísafjarðarkringlurnar smakkaðar), í glerlistaverkstæði Dagnýjar og á ýmsum sögufrægum stöðum.
Hvar fæddist Ólafur Ragnar Grímsson? Er Ísafjarðarkirkja ljót eða falleg? Hvar komumst við á klósett? Við öllum þessum spurningum fást svör á göngunni. Ferðinni lýkur á byggðasafninu í Neðstakaupstað.
Eftir hádegismat er farið í siglingu yfir á Hesteyri. Hesteyri er í Hornstrandafriðlandinu, og síðustu ábúendur fluttu þaðan snemma á sjötta áratugnum. Plöntulíf er þar með miklum blóma því ábeit búpenings hefur engin verið síðan, auk þess sem fugla- og selalíf er mikið. Að lokinni stuttri göngu um eyrina bera Binna og niðjar hennar fram kaffiveitingar í Læknishúsinu, sem er vel uppgert í sinni upprunalegu mynd, nema að apótekaraskápurinn hefur vikið fyrir gasknúnum ísskápi.
Dýrindis kvöldverður borinn fram á Hótelinu þegar fólk er búið að skipta úr útigallanum í betri föt.
Dagur 3:
Eftir morgunmat er stigið upp í rútu og haldið í smá rútuferð. Byrjað er að fara Óshlíðina út í Bolungarvík og safnið í Ósvör heimsótt. Ef veður er gott er gaman að keyra upp á Bolafjall hvaðan útsýn er frábær.
Frá Bolungarvík er hægt að keyra hvert sem er, en til dæmis er hægt að heimsækja sjávarþorpið Suðureyri, heimsækja gömlu bókabúðina og handverkshúsið á Flateyri, eða fara yfir í Dýrafjörð og skoða Skrúð.
Eftir hádegi er siglt inn Djúp í eyna Vigur. Vinaleg fjölskyldan tekur þar á móti gestum. Eyjan er meðal útlendinga þekkt fyrir fjölskrúðugt og auðugt fuglalíf, en Íslendingar hafa ekki síður áhuga á einu vindmyllu landsins, pósthúsinu, daglegu lífi eyjaskeggja og notalegum andanum sem eyjan býr yfir.
Kvöldverður etinn á hótelinu um kvöldið.
Dagur 4:
Keyrt frá Ísafirði suður á Látrabjarg. Á leiðinni er vert að koma við á Skrúði (ef það hefur ekki verið gert áður) og á safninu á Hrafnseyri. Á Bíldudal tekur Jón Kr. Ólafsson á móti gestum og sýnir safn sitt, Melódíur minninganna, hvar hann hefur safnað saman ókjörum af merkisgripum úr íslenskri tónlistarsögu.
Þá er komið við á safninu að Hnjóti í Örlygshöfn. Eftir að hafa hent töskunum inn á Hótel Breiðavík er keyrt sem leið liggur út á Látrabjargið sjálft og gengið meðfram brúninni eftir því sem þrek og tími leyfir.
Dagur 5:
Eftir morgunverð er keyrt niður á Rauðasand, hvar auðvelt er að ná frábærum myndum af litríkum sandinum. Þaðan er lagt af stað heim. Sumum hópum hentar að taka Breiðafjarðarferjuna Baldur frá Brjánslæk, en öðrum hentar að keyra beinustu leið heim. Vel heppnaðri ferð á Vestfirði er þar með lokið og allir halda sáttir til síns heima með þægilegar ljúfar í farteskinu.
Myndir
-
Grillað
Skipstjórarnir tveir gæða sér á dýrindis lambi sem er heilgrillað að Kirkjubóli í Bjarnardal.
Mynd:GÓ.