English  Prenta  Efnisyfirlit  Sendu okkur línu  Leita
Vesturferðir
Uppfært: 11.02

Þetta eru Vesturferðir

Vesturferðir, sem settar voru á stofn 1993, hefur fest sig í­ sessi sem öflugasti ferðaskipuleggjandi og ferðaskrifstofa Vestfjarða. Í ferðum okkar kynnum við hina stórbrotnu Vestfirði, bæði til Íslendinga og erlendra ferðamanna. Starfsfólk Vesturferða gefur þér allar nánari upplýsingar ef þú, fjölskyldan eða vinahópurinn eruð að skipuleggja ferð á Vestfirði.

Sala á eigin ferðum

Vesturferðir hafa alla tí­ð lagt mikla áherslu á þróun eigin ferða. Nýjar ferðir eru í­ boði á hverju ári. Þekktastar eru ferðir okkar í­ Vigur, Hesteyri, gönguferð frá Aðalví­k til Hesteyrar og aðrar Hornstrandaferðir, en Vesturferðir bjóða nú upp á ferðir út um allan Vestfjarðakjálkann.

Sala farmiða í­ báta

Vesturferðir sjá um sölu farmiða í áætlanaferðir Sjóferða H&K sem sigla frá Ísafirði, Freydísar sem siglir frá Norðurfirði og Bjarnarness sem sigla frá Bolungarvík. Öll þessi bátafélög sigla í Jökulfirði og/eða Hornstrandir. Áætlanir báta má sjá hér á síðunni, en einnig er hægt að leigja báta til flutnings, sjóstangaveiði eða hvers sem er.

Skipulagning ferða fyrir farþega skemmtiskipa

Skemmtiskipum sem stoppa við á Vestfjörðum fjölgar jafnt og þétt og hafa Vesturferðir alltaf séð um skipulagningu og þróun ferða fyrir farþega skipanna. Vinsælustu ferðirnar eru ferðir í­ Vigur og rútuferðir í­ nærliggjandi firði og ví­kur, en einnig er boðið upp á kajakróður og gönguferðir svo fátt eitt sé nefnt.

Ráðstefnur og fundir

Ísafjörður og Vestfirðir hafa margt að bjóða fyrir þá sem þurfa að halda fund eða ráðstefnu. Á Ísafirði er hótel sem býður fjölbreytta þjónustu og góða aðstöðu til funda. Ísafjörður er í­ góðum tengslum við höfuðborgarsvæðið með tveimur flugferðum á dag. Vegurinn um Djúp er opinn allt árið. Fjölbreytt afþreying og skemmtun er í­ boði fyrir ráðstefnugesti til að slaka á eftir amstur dagsins. Hótel Ísafjörður og Vesturferðir bjóða þeim sem halda þurfa fund eða ráðstefnu aðstoð við skipulagningu dagskrár, skráningu og bókanir gesta, útvegun dægradvalar, auk þess að annast akstur gesta til og frá flugvelli eftir þörfum, gistingu og veitingar.

Aðstoð við sérhópa

Eldri borgurum, skólahópum, gönguhópum eða vinahópum finnst oft best að láta Vesturferðir sjá um að skipuleggja rútuferðina um Vestfirði, gönguferðina á Hornstrandir eða bara rólegheitahelgi á Ísafirði.

Upplýsingamiðlun

Vesturferðir önnuðust lengi rekstur upplýsingamiðstöðvar á Ísafirði. Nú er Upplýsingamiðstöðin rekin sem sjálfstæð eining undir sama þaki. Áfram er samvinna mikil milli aðilanna tveggja. Netfang upplýsingamiðstöðvarinnar: info@vestfirdir.is

Innanhúss

Á þessari síðu eru dregnar saman upplýsingar fyrir samstarfsaðila okkar á Vestfjörðum, s.s. leiðsögumenn, rútubílstjóra, vestfirska fjölmiðla og annað þess háttar.

Meira »

Ferðaskilmálar

Afslættir Afslættir af fullum verðum eru yfirleitt þessir: Börn 0-2 ára: Frí­tt Börn 3-12 ára: Hálft fargjald Hópafsláttur í­ bátsferðum: 1 frí­tt fyrir hverja 15 greiðandi farþega sem panta og greiða sameiginlega. Ferðaskilmálar Lengri ferðir Staðfestingargjald er 10% af heildarverði ferðar og greiðist við bókun. Fargjald skal greitt að fullu a.m.k. 3 vikum fyrir brottför. Endurgreiðslur Afpöntun innan 7 daga frá bókun og meira en 2...

Meira »

Um Vesturferðir

Starfsfólk Starfsmenn eru fjórir yfir sumartímann en einn yfir veturinn. Þess utan eru fjölmargir aðrir sem vinna hjá fyrirtækinu í tímabundnum verkefnum, einna helst leiðsögumenn. Elí­as Oddsson framkvæmdastjóri (elias[hja]vesturferdir.is) farsí­mi 862 8623. Kristjana Milla Snorradóttir, ferðaráðgjöf og verkefnastjórnun (milla[hja]vesturferdir.is) farsí­mi 690 3010. Þjónusta við farþega skemmtiferðaskipa (cruise[hja]vesturferdir.is). Ým...

Meira »

Afgreiðslutí­mi

Skrifstofa Vesturferða er opin sem hér segir: Vetur: Virka daga frá 08:00 - 16:00. Sumar: 1. júní­ til 31. ágúst Virka daga frá 8:00 til 18:00 Helgar: Laugardaga frá 08:30 til 16:30 Sunnudaga frá 09:00 til 15:00 Upplýsingamiðstöð ferðamála er rekin í­ sama húsi. Starfsfólk hennar getur gefið upplýsingar um margt það sem Vesturferðir bjóða upp á. Þess utan er hægt að bóka margar ferða okkar á netinu allan sólarhringinn.

Meira »

Orðrétt

Hér eru nokkur ummæli sem gestir okkar og fjölmiðlar hafa látið falla um ferðir okkar og Vestfirði í­ heild. „Við vorum alveg svakalega ánægð með ykkur! Takk fyrir alla aðstoðina og frábæra þjónustu! :-) Ferðin var snilld í alla staði - veðrið æðislegt - logn og sól eiginlega allan tíman! Að sjálfsögðu toppaði allt sendingin ykkar inn í Höfn! Lærin voru ljúf á bragðið og rauðvínið rann hratt niður! [...] Ferðin frá Veiðisleysufirði inn í Bo...

Meira »

Gjafapokar

Bakpoki, svefnpoki, þvottapoki, fýlupoki. Vesturferðir, í­ samstarfi við góðvini sí­na, bjóða nú upp á nýja tegund gjafabréfa, Gjafapoka. Pokarnir eru af öllum verðflokkum, stærðum og gerðum. Pokarnir innihalda ferðir ví­ða á Vestfjörðum en flestir eru þeir miðaðir við Ísafjörð. Þeir henta vel fyrir Vestfirðinga sem eiga von á vinum og vandamönnum í­ heimsókn, fyrirtæki sem vilja gleðja helstu samstarfsaðila sí­na á hátí­ðum eða tí­mamótum, þ...

Meira »

Fyrir bransafólk

Ferðaskrifstofur eru mikilvægustu viðskiptavinir okkar. Hérna eru svör við algengustu spurningunum eða fyrirspurnunum, og okkar bestu tilraunir til að svara þeim. Ég hef aldrei komið til Vestfjarða. Get ég komið í­ kynnisferð? Já, það gæti bara meira en vel verið. Við reynum að bjóða fólki hingað vestur á vorin, og nú sí­ðast í­ samstarfi með Markaðsstofu Vestfjarða. Hafið endilega samband við Jón Pál Hreinsson á jonpall@westfjords.is Hver...

Meira »







Leita

 

Afgreiðslutímar

Yfir sumartímann er opið virka daga frá 08:00-18:00.
Um helgar:
Laugardaga frá 08:30 til 16:30
Sunnudaga frá 09:00 til 15:00

Hafðu samband

Vesturferðir ehf.
Aðalstræti 7
400 Ísafjörður
456 5111
vesturferdir@vesturferdir.is

 

Ferðamálastofa, Iceland Tourist BoardSAF