Uppfært: 26.03
Hjólaleiga Vesturferða
Ísafjörður og nágrenni hafa ótal möguleika á hjólreiðum, bæði eftir þjóðvegunum en líka eftir vegaslóðum og gömlum fjallvegum. Mörgum þykir líka sniðugt að hjóla út fyrir bæinn og fara svo í stutta fjallgöngu.
Vesturferðir hafa nokkur vel útbúin fjallahjól til leigu á skrifstofu sinni við Aðalstræti á Ísafirði.
Einnig er hægt að fá hjól fyrir börn ef pantað er með einhverjum fyrirvara.
Á Vesturferðum er hægt að nálgast góðar upplýsingar um hjólaleiðir og starfsfólkinu er það sönn ánægja að aðstoða við skipulagningu hjólaferða.
Verð. 3.500,- isk á sólarhring (2010).