-Matarferð í vistvænt sjávarþorp-
Núna er tækifæri til að upplifa lítið vistvænt sjávarþorp og smakka á framleiðsluvörum heimamanna. Suðureyri er lítið vistvænt sjávarþorp þar sem allt snýst um fisk. Í þessari ferð færðu fróðleik um nútímaframleiðslu á fiskafurðum, hvernig svona lítið samfélag er að virka frá degi til dags í bland við nokkur skemmtileg stopp þar sem boðið er uppá smakk að hætti heimamanna.
Eftir gönguna áttu tækifæri á að upplifa sjávarþorpsbraginn með því að hitta heimamenn og gesti á götuhorni eða á veitingahúsum þorpsins í gott spjall um t.d. veiði og veður sem er alltaf jafn vinsælt.
Ath. hægt er að taka strætó frá Ísafirði og kostar ferð til/frá Suðureyrar 1.000 ISK.
Tímabil: 1/05-30/9 2017
Brottför: 09:00, 11:00, 13:00, 15:00 en hálftíma áður ef bókað er transfer
Lengd ferðar: ca 1,5 klst en um 3 klst með strætóferð
Innifalið: leiðsögn og fjögur matarstopp
Lágmark: 1
Verð: 5.000 ISK án strætóferðar en 7.900 ISK með rútuferð
Áætlun rútu frá Ísafirði:
15/5.- 30/6. 10:30 frá Ísafirði
1/7.- 31/7. 10:30 + 14:30 frá Ísafirði
1/8 -1/9. 10:30 frá Ísafirði